Hunda- og kattahreinsun í Dalvíkurbyggð

Árleg hunda- og kattahreinsun fer fram í Dalvíkurbyggð dagana 24. - 26. nóvember 2015, alla daga frá kl.16:00 – 18:00.

Kattahreinsun fer fram 24. nóvember
Hundahreinsun fer fram 25. og 26. nóvember.

Samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins um hunda- og kattahald er skylt að örmerkja dýrin. Samhliða hreinsuninni verður boðið upp á, gegn gjaldi, að örmerkja þau dýr sem ekki hafa verið örmerkt.

Framvísa þarf kvittun fyrir greiðslu leyfisgjalda.

Hreinsun fer fram í áhaldahúsi Hitaveitu Dalvíkur við Sandskeið.
Hunda- og kattaeigendum er skylt að mæta með hunda og ketti sína til hreinsunar.

Ef hreinsun hefur þegar farið fram eru eigendur vinsamlegast beðnir um að koma í áhaldahús og framvísa vottorði því til staðfestingar.


Dalvíkurbyggð
Nóvember 2015

Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs.