Hunda- og kattahreinsun í Dalvíkurbyggð

Árleg hunda- og kattahreinsun fer fram í Dalvíkurbyggð dagana 13. - 15. nóvember 2013, alla daga frá kl.16:00 – 18:00.


Kattahreinsun fer fram 13. nóvember og hundahreinsun fer fram 14. og 15. nóvember.


Samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins um hunda- og kattahald er skylt að örmerkja dýrin, samhliða hreinsuninni verður boðið upp á, gegn gjaldi að örmerkja þau dýr sem ekki hafa verið örmerkt.
Framvísa þarf kvittun fyrir greiðslu leyfisgjalda.
Hreinsun fer fram í áhaldahúsi Hitaveitu Dalvíkur við Sandskeið.
Hunda- og kattaeigendum er skylt að mæta með hunda og ketti sína til hreinsunar.
Ef hreinsun hefur þegar farið fram eru eigendur vinsamlegast beðnir um að koma í áhaldahús og framvísa vottorði því til staðfestingar.


Dalvíkurbyggð
Nóvember 2013

Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs.