Hreyfivika 21.-27. september

Í tilefni af Hreyfiviku UMFÍ 21.-27. september verður frítt í rækt og sund í Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar alla vikuna.
Einnig er frítt í hefðbundna líkamsræktartíma og neðangreinda dagskrá:

Mánudaginn 21. september:
 Þrektími hjá Jónu Gunnu og Hönnu kl. 16:30
 Opin fimleikaæfing fyrir alla mánudaginn 21. september frá 16-17 Tilvalið fyrir alla sem vilja prófa fimleika að kíkja til okkar frá 1.-99. ára

Þriðjudaginn 22. september:
 Helena Ragna Frímanssdóttir leiðbeinir í sundi kl. 16-17
 Jóna Gunna leiðbeinir í líkamsræktinni frá 16:30-17:30

Miðvikudaginn 23. september:
 Þrektími hjá Jónu Gunnu og Hönnu kl. 16:30
 Opin blakæfing miðvikudaginn 23. september kl. 20:00
Tilvalið fyrir þá sem vilja prófa blak. Ekkert aldurstakmark.

Ef áhugi verður og næg þátttaka næst verður hægt að hafa þrektímana kl. 16:30 hjá Jónu Gunnu og Hönnu áfram í vetur gegn vægu gjaldi

Dalvíkurbyggð og Ungmennasamband Eyjafjarðar standa saman að verkefninu