Hreinsunardagar 18.-20. maí og 25.-27. maí

Dagana 18. – 20. maí og 25. – 27. maí mun starfsfólk Vinnuskólans fara um þéttbýli Dalvíkurbyggðar og fjarlægja garðaúrgang sem komið hefur verið fyrir út við lóðamörk.
Hér er einungis um lífrænan úrgang að ræða eins og trjágreinar, laufblöð og annan almennan garðagróður.

Annað rusl sjá íbúar sjálfir um að henda í þar til gerða gáma á gámasvæðinu.

Garðeigendum er bent á að klippa trjágróður þar sem hann hindrar umferð gangandi fólks um gangstéttir og stíga og umferð bifreiða um götur.

Sérstakur gámur er á gámasvæðinu fyrir garðaúrgang, einnig er gámur á Hauganesi og annar á Árskógssandi. Gámasvæðið er opið virka daga frá 15.00 - 19.00 og laugardaga frá 11.00 – 14.00.

Ef um mikið magn er að ræða er oft þægilegra að losa beint á garðaúrgangssvæðið við Höfða á Dalvík og sambærileg svæði á Hauganesi og Árskógssandi sem íbúar vita um.

Og nú muna allir eftir að losa úr pokunum.


Gleðilegt sumar

Garðyrkjustjóri