Hreinsun á jólatrjám

Mánudaginn 9. janúar mun bíll fara um Dalvík, Hauganes og Árskógsströnd og hirða upp jólatré sem komið hefur verið fyrir út við lóðamörk.

Þeir sem ekki nýta sér þessa þjónustu er bent á þar til gerða gáma eða svæði fyrir garðaúrgang.

Víða í bænum er einnig mikið rusl eftir flugelda og eru þeir sem eiga í hlut beðnir um að hreinsa upp eftir sig sem fyrst. Margar hendur vinna létt verk.

Gleðilegt ár.

Garðyrkjustjóri.