Hopp til Dalvíkurbyggðar.

Hopp til Dalvíkurbyggðar.

Nýlega hóf fyrirtækið Hopp Tröllaskagi starfsemi í Dalvíkurbyggð. En fyrirtækið leigir út Hopp hlaupahjól á Dalvík. Hopphjólin verða 20 talsins og eru þau nú þegar kominn víðsvegar um bæinn.
Við hjá Dalvíkurbyggð bjóðum Hopp Tröllaskaga velkomið til Dalvíkur og viljum minna á reglurnar í kringum hjólin en þær má finna hér. Auðvitað er svo mjög mikilvægt að hjálmurinn sé með í för þegar verið að nota hjólin. Við vonum að koma Hopp Tröllaskaga komi til með að auka þjónustu við íbúa og gesti sveitarfélagsins og að starfsemin verði slysalaus.