Hollvinir bretta upp ermar

Hollvinir bretta upp ermar
 
Anna Þóra og Kristín taka til hendinni

Hollvinir Húsabakka mættu á dögunum  málningarklæddir og gerðu skurk í málningu og öðrum lagfæringum á íbúðinni í Náttúrusetrinu. Er hún sem óðast að verða íbúðarhæf enda hefur fyrsti fræðimaðurinn þegar boðað komu sína í hana vikuna eftir svarfdælska marsinn. Enn er þó eftir að lagfæra ljós og ganga frá ýmsu smálegu og förum við í það núna í vikunni. Nokkrir hafa lánað húsgögn í íbúðina. Bæjarstjóri  Dalvíkurbyggðar reið á vaðið og lánaði borðstofuborð og stóla ásamt sófa og fleira hefur tínst til.