Hlynur Freyr 6 ára

Hlynur Freyr 6 ára

Í dag föstudaginn 3. maí er hann Hlynur Freyr 6 ára. Við héldum uppá afmælið hans í leikskólanum í dag með því að leyfa honum að gera sér glæsilega kórónu, þá flaggaði hann íslenska fánanum í tilefni þessa merka dags og bauð börnunum upp á ávexti í ávaxtastund. Að lokum sungu bæði börn og kennarar afmælissönginn fyrir hann. Það var svo ekki ónýtt fyrir Hlyn að fá bæði Tómas Inga bróðir sinn í heimsókn frá Krílakoti og töframanninn Einar í afmælið sitt sem sýndi okkur allskyns brellur. En Hlynur aðstoðaði Einar meira að segja í einu atriðinu  Við óskum elsku Hlyn Frey og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn