Hjúkrunarframkvæmdastjóri óskast við hjúkrunar- og dvalarheimilið Dalbæ

Hjúkrunarframkvæmdastjóri óskast við hjúkrunar- og dvalarheimilið Dalbæ

Staða hjúkrunarframkvæmdastjóra hjúkrunar- og dvalarheimilisins Dalbæjar á Dalvík er laus til umsóknar. Leitað er að einstaklingi til að takast á við krefjandi og skemmtilegt starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Dalbær er hjúkrunar- og dvalarheimili á Dalvík og tók til starfa árið 1979. Á Dalbæ eru 38 íbúar þar af 27 í hjúkrunarrýmum og 11 í dvalarrýmum. Fjöldi starfsmanna er 65 í um 37 stöðugildum.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.

Starfssvið

  • Veitir heimilinu forstöðu
  • Ber ábyrgð á öllu starfsmannahaldi og daglegum rekstri þess
  • Eftirlit með fjármálum og vinna við fjárhagsáætlanir
  • Hefur samskipti við alla starfshópa, íbúa og alla hagsmuna- og samstarfsaðila
  • Skipuleggur starfið og hefur faglega forystu á sviði hjúkrunar og umönnunar á heimilinu


Menntunar- og hæfniskröfur

  • Gerð er krafa um íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Framhaldsmenntun í hjúkrun er æskileg
  • Reynsla af stjórnun og rekstri er æskileg
  • Góð tölvukunnátta skilyrði
  • Þekking á starfsemi öldrunarþjónustu er æskileg
  • Leiðtogahæfni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð eru skilyrði Góð íslensku- og enskukunnátta

 

Umsóknarfrestur er til 22. apríl

Nánari upplýsingar á heimasíðu Capacent en allar umsóknir fara þar í gegn https://capacent.is/radningar/storf/dalbaer-hjukrunar-og-dvalarheimili/hjukrunarframkvaemdastjori-6567/