Hjól atvinnulífsins í gang

Hjól atvinnulífsins í gang

Ákveðið hefur verið að keyra atvinnulífið af stað að nýju á morgun. Atvinnurekendur stærstu fyrirtækjanna gangsetja sín fyrirtæki í samráði Rarik. EF allt gengur að óskum er ekki reiknað með að þessi aðgerð hafi áhrif á raforku til íbúa byggðalagsins. 

Skólahald verður með hefðbundnum hætti í Dalvíkurbyggð sem og önnur þjónusta sveitarfélagsins.

Opið verður í heilsurækt  og sal íþróttamiðstöðvarinnar en sundlaugin mun áfram vera lokuð í einhverja daga.