Himbriminn gladdi göngufólk

Himbriminn gladdi göngufólk

Um 25 manns tóku þátt í fuglaskoðunarferð um Friðland Svarfdæla síðastliðið þriðjudagskvöld í blíðskaparveðri. Arnór Sigfússon fræddi mannskapinn um eitt og annað varðandi fuglana í friðlandinu og margt bar fyrir augu. Meðal annars himbrimapar sem tekið hefur sér bólfestu á Hrísatjörninni. Ekki virtist það vera þar með hreiður en eitthvað eru þau hjúin að íhuga slíkt í framtíðinni.