Hey, ég er með frábæra hugmynd, eigum við að vinna saman?

Á síðasta fyrirtækjaþingi atvinnumála- og kynningarráðs, sem haldið var 5. nóvember 2015, var fjallað um samstarf og samvinnu fyrirtækja í Dalvíkurbyggð. Upp úr þeirri vinnu komu hugmyndir að samstarfsvettvangi/klösum fyrir ákveðin verkefni sem nú er markmiðið að vinna áfram með.
Atvinnumála- og kynningarráð vill því boða til fyrsta fundar í eftirfarandi verkefnum:

Sjávarklasi
Fyrir hverja: Alla sem starfa í sjávarútvegi eða hliðargreinum og aðra sem hafa áhuga á samstarfi í þessari atvinnugrein.
Fundartími: Mánudaginn 7. mars kl. 17:00

Orkuklasi
Fyrir hverja: Alla sem hafa áhuga á því að byggja upp starfsemi tengdri orkumálum eða hafa áhuga á verkefninu almennt.
Fundartími: Miðvikudaginn 9. mars kl. 17:00

Dekurklasi
Fyrir hverja: Alla sem starfa við persónulega þjónustu í sveitarfélaginu s.s. hársnyrtingu, nudd, líkamsrækt, snyrtingu og svo framv. og aðra sem hafa áhuga á samstarfi/samvinnu í kringum slík verkefni.
Fundartími: Mánudaginn 14. mars kl. 17:00

Ferðaþjónustuklasi
Fyrir hverja: Alla sem starfa í ferðaþjónustu eða hliðargreinum og aðra sem hafa áhuga á samstarfi í þessari atvinnugrein.
Fundartími: Miðvikudaginn 16 mars kl. 17:00

Markmið fundanna er að hittast, ræða málin og skoða hvort að viðstaddir sjái einhvern flöt á frekari samvinnu/samstarfi eða öðru sem tengist verkefnunum.
Fundirnir verða allir haldnir á 3. hæð Ráðhússins.