Hesthúsasvæði Hringsholti - Skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag

Hesthúsasvæði Hringsholti - Skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag

Hesthúsasvæði Hringsholti

Skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag
Dalvíkurbyggð hefur hafið vinnu við gerð deiliskipulags fyrir hesthúsasvæði í Hringsholti
Nú liggur fyrir skipulagslýsing þar sem fram kemur hvaða áherslur sveitarstjórn hefur við skipulagsvinnuna, upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu, fyrirhugað skipulagsferli og hvernig kynningu og samráði verður háttað.

Skipulagslýsinguna má sjá hér. Lýsinguna má einnig nálgast í afgreiðslu á 1.hæð í ráðhúsi Dalvíkur og á Skipulagsgátt: skipulagsgatt.is undir máli nr. 1575/2025.

Íbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér skipulagslýsinguna og senda inn ábendingar, annað hvort með tölvupósti á dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is, bréfleiðis til framkvæmdasviðs í Ráðhúsi Dalvíkur eða í gegnum Skipulagsgátt.

Frestur til að senda inn ábendingar er til 24.desember 2025.

Skipulagsfulltrúi