Helgin í Dalvíkurbyggð

Ýmislegt verður um að vera um helgina í Dalvíkurbyggð. Gönguvikan tekur senn enda en um helgina verða síðustu göngur þessarar frábæru gönguviku farnar. Nánari upplýsingar er að finna á www.dalvik.is/gonguvika.

Á laugardaginn verður haldið afmælismót Hamars og Jónsmessumót í golfi á Arnarholtsvelli en það er golfklúbburinn Hamar sem stendur fyrir því.

Á sunnudaginn verður svo Markaðsdagur í Dýragarðinum á Krossum frá kl. 13:00-16:00 og margt skemmtilegt og spennandi að sjá og skoða þar. www.dyragardurinn.com

Góða helgi