Heita vatnið tekið af Laugarhlíðarsvæðinu á morgun miðvikudag

Á morgun, miðvikudaginn 11. september, verður heita vatnið tekið af Laugarhlíðarsvæðinu kl. 10:00 vegna viðgerða. Af þeim orsökum verður heitavatnslaust fram eftir degi á því svæði. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem það kann að valda.