Heimsókn í jólaþorpið

Heimsókn í jólaþorpið

Krakkarnir á Fagrahvammi komu í heimsókn í jólaþorpið núna áðan og fengu að sjá hvernig lífið gengur fyrir sig í þorpinu. Þeim fannst margt mjög spennandi og skemmtilegt við þorpið og hundur á hlaupum þar vakti sérstaka athygli þeirra. Eftir að hafa fylgst með íbúum þorpsins dágóða stund sungu þau tvö lög fyrir íbúana og fengu að launum piparkökur.