Heimasíðan bergmenn.com er komin í loftið

Heimasíðan bergmenn.com er komin í loftið

Nú er komin í loftið heimasíðan www.bergmenn.com en Bergmenn eru eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í fjallaleiðsögn eingöngu. Bergmenn eru einnig eina fyrirtækið á Íslandi sem bíður uppá þjónustu alþjóðlega faglærðra fjallaleiðsögumanna. Jökull Bergmann, frá Klængshóli í Skíðadal, fjallaleiðsögumaður er stofnandi og aðal eigandi Bergmanna en hann nýtur aðstoðar og krafta fjölda faglærðra fjallaleiðsögumanna víðsvegar að úr heiminum. Bergmenn bjóða uppá fjölbeyttar fjallaferðir á Íslandi, Grænlandi og Ölpunum ásamt því að starfa sem leiðsögumenn um allan heim. Á Íslandi sérhæfa Bergmenn sig í fjallaskíðaferðum, þyrlu skíðun, fjallgöngum og klifri hverskonar. Þjónusta Bergmanna er sérsniðin að þörfum hvers viðskiptavinar sem þýðir að þú þarft ekki að bíða eftir að draumaferðin þín sé á dagskrá heldur hefur þú samband og við gerum hana að veruleika þegar þér hentar.