Heilsueflandi samstarf

Heilsueflandi samstarf

Heilsueflandi samstarf íþróttamiðstöðva Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar

Íþróttamiðstöðvar Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar hafa komið á formlegu samstarfi milli sveitarfélaganna í samnýtingu sund og líkamsræktarkorta. Þeir sem eiga gild tímabilskort hjá annarri íþróttamiðstöðinni geta því fengið aðgang að rækt og/eða sundi í allt að tvö skipti á viku á hvorum stað. 

Að auki verður tímabundinn aðgangur fyrir korthafa þegar annar aðilinn er með lokað vegna viðhalds eða þrifa.

Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð eru bæði heilsueflandi sveitarfélög og er þetta samstarf í takt við áherslur þess verkefnis.