Hefur þú skoðun á snjómokstri, hundasvæði eða opnum svæðum í sveitarfélaginu?

Hefur þú skoðun á snjómokstri, hundasvæði eða opnum svæðum í sveitarfélaginu?

Ef svo er geturðu tekið þátt í þjónustukönnun inn á íbúagáttinni Mín Dalvíkurbyggð og svarað nokkrum spurningum sem snúa að starfsemi umhverfis- og tæknisviðs. 

Til að taka þátt í könnuninni skaltu smella hérna en við það verður þú fluttur inn á innskráningarsíðu Mín Dalvíkurbyggð. Þar skráirðu þig inn með íslykli eða rafrænum skilríkjum. Að innskráningu lokinni velurðu hnappinn Kannanir og kosningar vinstra megin í valstiku. Velur svo könnunina og tekur þátt.