Haustmót blakfélagsins Rima

Haustmót blakfélagsins Rima verður í Íþróttamiðstöðinni á Dalvík laugardaginn 20. október. Mótið hefst kl. 08:00 og stendur fram eftir degi. Félagið hefur haldið sambærileg mót á hverju hausti frá því að Íþróttamiðstöðin var opnuð enda þykir húsið henta afar vel til blakiðkunar. Æfingar hjá Rimum eru á mánudags og miðvikudagskvöldum frá kl. 20:00 - 21:30 og eru öllum opnar.