Haustmót blakfélagsins Rima

Haustmót blakfélagsins Rima verður í íþróttamiðstöðinni á Dalvík laugardaginn 20. október. Mótið hefst klukkan 8:00 og stendur fram eftir degi. Félagið hefur haldið sambærileg mót á hverju hausti frá því íþróttamiðstöðin var opnuð enda þykir húsið henta afar vel til blakiðkunar. Æfingar hjá Rimum eru á mánudags- og miðvikudagskvöldum frá klukkan 20:00-21:30 og eru öllum opnar.