Hátíðarhöld á 17. júní

Hátíðarhöld á 17. júní

Kl. 08:00    Fánar dregnir að húni - allir fánar á loft!

Kl. 11:00    17. júní hlaupið fer fram á íþróttavellinum á Dalvík í umsjón frjálsíþróttadeildar UMFS. Skráning á staðnum fyrir hlaup og verðlaunaafhending að hlaupi loknu. 

Kl. 13:00  Skrúðganga leggur af stað frá Íþróttamiðstöð að Menningarhúsinu. Þátttakendur eru beðnir um að mæta tímanlega og taka með sér fána og veifur. 

Kl. 13:30 Hátíðarstund í Menningarhúsinu Bergi

  • Ávarp fjallkonunnar
  • Hátíðarræða 
  • Tónlistaratriði
  • Það spáir karamellurigningu í kringum Berg

 

Að lokinni hátíðarstund við Berg: 

Hestamennska - Sveinbjörn Hjörleifsson og aðstoðarmenn hans teyma hesta undir börnum við Krílakot.

Leiktæki í umsjón flokksstjóra Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar í kirkjubrekku - Sápubolti, vatnsrennibraut, vatnaboltinn og fleira skemmtilegt. Gamla tívolístemningin endurvakin. Foreldrar athugið: það verður hægt að bleyta sig í sumum leiktækjum og því æskilegt að börnin hafi föt til skiptanna.

Hátíðarkaffi -  Barna– og unglinaráð knattspyrnudeildar UMFS selur hátíðarkaffi í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju að lokinni hátíðarstund. Verð 13 ára og eldri 1.500 kr, börn 6-12 ára 500 kr. Frítt fyrir börn 0-6 ára miðast við leikskólaaldur. Kaffið stendur yfir frá kl. 14:00-17:00.

Tónleikar í Bergi - Söngfjelagið flytur Fuglakabarett með texta eftir Hjörleif Hjartarson og tónlist eftir Daníel Þorsteinsson í Bergi menningarhúsi kl. 17:00. Hluta verksins fluttir kórinn á síðasta Vetrardags-hátíð í Iðnó vorið 2017. Verð kr. 2.500.-

 

Sundlaugarfjör í íþróttamiðstöðinni/sundlaug verður ekki í ár á 17. júní þar sem sundlaugin er lokuð. Sambærilegt sundlaugarfjör verður haldið þegar sundlaugin opnar aftur í júlí með glæsilegri dagskrá í samvinnu við ungmennaráð Dalvíkurbyggðar.  Nánar auglýst síðar.