Handverkssýning félagsstarfs eldri borgara

Árleg handverkssýning félagsstarfs eldri borgara í Dalvíkurbyggð verður á Dalbæ laugardaginn 16. maí, sunnudaginn 17. maí og mánudaginn 18. maí. Sýningin er opin kl. 13:00-17:00 alla dagana.

Sýningin er öllum opin og er ókeypis.

Kaffisala til ágóða fyrir félagsstarfið verður sunnudaginn 17. maí frá kl. 13:00-17:00.