Handverksmarkaður í Bergi laugardagana 8. og 15. maí

Efnt verður til handverksmarkaðar í anddyri Bergs þá laugardaga sem Evrópumót í sjóstangaveiði stendur yfir á Dalvík, eða laugardagana 8. og 15. maí.
Á markaðinum verður að finna vandað handverk úr byggðarlaginu. Opnunartímar eru eftirfarandi:

Laugardaginn 8. maí kl. 15 - 21
Laugardaginn 15. maí kl. 15 - 20