Á sunnudaginn nk. þann 29. september verður hann Hafsteinn Thor 5 ára. Hann bjó sér til glæsilega kórónu í tilefni dagsins og bauð börnunum upp á ávexti í ávaxtastundinni ásamt Arnari Geir og Steinu stýru sem einmitt eiga afmæli sama dag
Afmælissöngurinn var svo að sjálfsögðu sunginn fyrir hann. Í tilefni þessa merka dags fór hann út og flaggaði íslenska fánanum. Ekki skemmdi það svo daginn að í dag var einnig dótadagur í leikskólanum
Við óskum elsku Hafsteini Thor og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.