Guðmundur Árni 5 ára

Guðmundur Árni 5 ára

 

Á morgun þann 10. nóvember verður hann Guðmundur Árni 5 ára. Af því tilefni bjó hann sér til glæsilega kórónu og var dagatalsstjóri dagsins þar sem reiknað var með að hann væri alveg með á hreinu hvaða dagur væri í dag og hvaða stóri dagur yrði þá á morgun enda var hann búinn að telja niður dagana að þessu merka degi í margar vikur  Þá bauð hann börnunum upp á ávexti í ávaxtastund og flaggaði íslenska fánanum í tilefni dagsins, að sjálfsögðu var svo afmælissöngurinn sunginn fyrir hann. Við óskum elsku Guðmundi Árna okkar og fjölskyldu hans innilega til hamingju með afmælið