Grund, Svarfaðardal Breyting á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar vegna áforma um efnisnám

Grund, Svarfaðardal Breyting á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar vegna áforma um efnisnám

Grund, Svarfaðardal
Breyting á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar vegna áforma um efnisnám

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar kynnir hér með skv. 1.mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, skipulagslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020.
Fyrirhuguð breyting á aðalskipulagi felst í því að skilgreina um 3,1 ha efnistökusvæði í Svarfaðardalsá í landi Grundar.
Skipulagslýsinguna má nálgast hér.
Lýsingin verður jafnframt aðgengileg í Ráðhúsi Dalvíkur og á Skipulagsgátt: skipulagsgatt.is frá 28.febrúar – 20.mars 2024.
Hægt er að skila inn ábendingum um skipulagslýsinguna á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is, bréfleiðis til Framkvæmdasviðs, Ráðhúsi, 620 Dalvík eða í gegnum Skipulagsgátt til og með 20.mars 2024.

Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda.