Grágæsir koma

Grágæsir koma

Ein grágæs var á stjákli á túninu ofan við Húsabakka í dag. Þar hafa ekki sést grágæsir síðan í haust. Vissulega gæti hún hafa haft vetursetu á Íslandi.  En tími farfuglanna er kominn og allt eins líklegt að hún sé að koma frá Bretlandseyjum eða jafnvel enn lengra að.