Götusópun er hafin

Götusópun er hafin

Vorið er á næsta leiti og einn af vorboðunum farinn af stað. Hafin er vinna við götusópun í Dalvíkurbyggð. Núna fyrir páskahelgina verður sópað í miðbæ Dalvíkur, Svarfaðarbraut að Íþróttamiðstöð og Mímisvegurinn. Strax eftir Páska verður sópað á Árskógssandi og Hauganesi og dagana þar á eftir verður Dalvíkin kláruð.

Íbúar eru beðnir um að fylgjast með þegar sópurinn kemur í þeirra götu og færa kyrrstæða bíla eða annað sem truflað getur ferð sópsins. Einnig er tilvalið að sópa af bílastæði og út á götu áður en sópurinn lætur sjá sig.

 

Eigna- og framkvæmdadeild