Götuheitin á Dalvík breytast - Fiskidagurinn mikli nálgast óðum

Götuheitin á Dalvík breytast - Fiskidagurinn mikli nálgast óðum

Fiskidagurinn mikli verður haldinn laugardaginn 12. ágúst og í tilefni þess var brugðið á leik við Sundlaug Dalvíkur í dag og götunum á Dalvík gefið nýtt nafn. Göturnar halda síðari hluta götuheitis en fyrri hlutinn breytist í fiskinafn. Göturnar munu heita þessum nöfnum í viku frá og með þriðjudeginum n.k.

Hér fyrir neðan má líta á nýju götuheitin:

  1. Miðtún - Grálúðutún
  2. Hringtún - Sæsteinssugutún
  3. Steintún - Kolskeggstún
  4. Skógarhólar - Fýlingshólar
  5. Lynghólar - Barrahólar
  6. Reynihólar - Gulllaxhólar
  7. Böggvisbraut - Laxabraut
  8. Dalbraut - Marhnútabraut
  9. Sunnubraut - Péturskipsbraut
  10. Mímisvegur - Risarækjuvegur
  11. Hjarðarslóð - Ennisfisksslóð
  12. Ásvegur - Kolukrabbavegur
  13. Hólavegur - Gaddakrabbavegur
  14. Lækjarstígur - Skötuselsstígur
  15. Karlsrauðatorg - Blálöngutorg
  16. Lokastígur - Bleikjustígur
  17. Brimnesbraut - Sandhverfubraut
  18. Bárugata - Rækjukóngsgata
  19. Ægisgata - Spærlingsgata
  20. Drafnarbraut - Steinbítsbraut
  21. Öldugata - Smokkfisksgata
  22. Kirkjuvegur - Grásleppuvegur
  23. Karlsbraut - Slétthalabraut
  24. Gunnarsbraut - Rauðmagabraut
  25. Ránarbraut - Bjúgtannabraut
  26. Svarfaðarbraut - Lúðubraut
  27. Stórhólsvegur - Hveljusogsfisksvegur
  28. Smáravegur - Sæköngulóarvegur
  29. Goðabraut - Regnbogasilungsbraut
  30. Bjarkabraut - Skötubraut
  31. Hafnarbraut - Hlýrabraut
  32. Sunnutún - Karfatún
  33. Sognstún - Krækilstún
  34. Skíðabraut - Blágómubraut
  35. Grundargata - Stórkjöftugata
  36. Mýrargata - Guðlaxgata
  37. Flæðavegur - Rauðhávsvegur