Gönguviku Dalvíkurbyggðar lokið

Nú er fyrstu gönguviku Dalvíkurbyggðar lokið með góðri þátttöku heimamanna og gesta. Góður rómur hefur verið gerður af þessu framtaki og er það nú í skoðun hvort hægt sé að hafa þetta að árlegum viðburði. Að ári er stefnt á svipaðar dagsetningar eða 28. júní - 4. júlí 2009. Ábendingar um það sem betur mætti fara eru vel þegnar. Tímasetningar á göngum og fleira er í athugun. Við þökkum öllum sem að komu, Kristjáni Eldjárni Hjartarsyni, þátttakendum gönguvikunnar og landeigendum kærlega fyrir.

Myndir úr öllum ferðum eru hér 

Frétt um 1. ferð Vikið

Frétt um 2. ferð Nykurtjörn

Frétt um 3. ferð Skeiðsvatn

Frétt um 4. ferð Gloppuskál

Frétt um 5. ferð Steinboginn

Frétt um 6. ferð Hvarfshnjúkur

Frétt um 7. ferð Sólarfjall

Frétt um Þorvaldsdalsgönguna