Göngustígur og frágangur á lóð Menningarhússins Bergs

Nú er aftur búið að opna göngustíginn á lóð Ráðhússins sem liggur á milli Menningarhússins Bergs og Ráðhússins og geta íbúar því aftur nýtt sér þennan vinsæla göngustíg en stígurinn hefur verið lokaður síðustu tvö árin vegna framkvæmda við menningarhúsið.

Ennþá á eftir að ganga frá lóðinni í kringum stíginn en það verður gert samhliða framkvæmdum við lóð menningarhússins en til stendur að tyrfa lóðina auk þess em 150 fm. pallur verður smíðaður í skotinu sunnan við húsið. Einnig er verið að ganga frá innganginum í húsið sem og gangstéttinni við Goðabraut.

Stefnt er að opnun hússins 5. ágúst en þá á þessum framkvæmdum að vera lokið. Nánari upplýsingar um Menningarhúsið Berg má finna á síðunni www.dalvik.is/menningarhus