Gönguhópur til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini

Nú tökum við á okkur rögg, sýnum góðu málefni samstöðu og aukum hreysti okkar og hreyfingu í leiðinni og göngum til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini. Gönguhópurinn hittist fyrir framan Ráðhúsið á mánudögum kl. 17:00 og gengið verður í um það bil 30 mínútur. Hægt er að gerast félagi á vef átaksins www.gongumsaman.is en árgjaldið er 3.000 kr. Nánari upplýsingar veitir Sigríður Gunnarsdóttir í síma 848 9442.