Gönguferðir í júlí 2012

Gönguferðir í júlí 2012

 

Veðrið hefur leikið við okkur á Leikbæ í allt sumar, við höfum notið þess að vera úti, bæði á leikskólalóð og utan hennar. Tvær lengri gönguferðir hafa verið farnar með allan barnahópinn í júlí, annars vegar í fjósið í Stærra Árskógi sem alltaf stendur fyrir sínu og sl. þriðjudag nutum við dagsins í skógreitnum og sulluðum í lækjarsprænum út frá Þorvaldsdalsá.

Hér má sjá myndir frá ferðinni góðu í Stærra Árskóg

Myndir úr blíðunni í Brúarhvammsreit