Gönguferð yfir Dranga næsta laugardag

Á laugardaginn, þann 13. ágúst, verður gengið milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar yfir Dranga. Mæting er við minnismerkið um Hákarla-Jörund þaðan sem farið verður klukkan 10. Fararstjóri verður Kristján Eldjárn Hjartarson. Góðir skór og gott nesti er nauðsynlegt til ferðarinnar sem gæti tekið 6 klukkustundir. Allir áhugasamir velkomnir og þáttökugjald er ekkert.

Ferðafélag Svarfdæla