Golfkynning

Golfkynning

Hann Heiðar Davíð, golfkennari og íþróttakennari, bauð krökkunum að koma í kynningartíma til sín. Hver hópstjóri fylgir sínum hópi. Tveir hópar hafa nú þegar farið, Guli hópur fór á síðasta föstudag og Rauði hópur í dag. Tíminn var mjög skemmtilegur. Við komum til með að fara næstu þrjá föstudaga með restina af hópunum. Myndir frá tímanum í morgun má sjá á myndasíðunni okkar.