Góðir gestir í heimsókn á Leikbæ

Góðir gestir í heimsókn á Leikbæ

 

Mánudaginn 17. maí kom Ella á Stóru-Hámundarstöðum í heimsókn til okkar með tvö lömb sem börnin fengu
að halda á og klappa. Flest barnanna vildu fá að halda á þeim en sum létu sér nægja að horfa á þau. Daginn eftir fengum við svo aðra óvænta heimsókn, en þá komu Steinunn og Valdimar frá Litlu-Hámundarstöðum
með 4 hesta í heimsókn.