Gleðilega páska!

Gleðilega páska!

Okkur langar að óska ykkur öllum gleðilegra páska og vonandi eigið þið eftir að njóta hátíðarinnar vel. Þótt vikan hafi verið stutt hjá okkur hefur verið nóg um að vera. Harpa kom með tvo krabba í heimsókn til okkar í gær sem krökkunum þótti mjög spennandi. Mánakotsbörnin fóru í gönguferð í gær og fóru svo að skoða ungana í búðinni. Þau fóru svo í heimsókn á bókasafnið í dag. Sólkotsbörnin fóru að skoða ungana í dag í tveimur hópum og svo var að sjálfsögðu gulur dagur hjá okkur öllum. Myndir frá þessari viku má finna inni í myndasafninu okkar.

Við minnum svo á að leikskólinn er lokaður n.k. þriðjudag, 2. apríl, vegna skipulagsdags kennara en við opnum aftur eftir páska miðvikudaginn 3. apríl.

Páskakveðjur frá kennurum Kátakots