Glæsilegur árangur á Andrésarleikunum

Glæsilegur árangur á Andrésarleikunum


Á nýliðnum Andrésar Andarleikum í Hlíðarfjalli náðu krakkar úr Skíðafélagi Dalvíkur glæsilegum árangri. Þátttakendur frá félaginu voru 81 og hlutu þeir samtals 41 verðlaun, en 18% af fjölda keppenda í hverjum flokki fara á verðlaunapall. Krakkarnir unnu 23 verðlaun í fyrstu þremur sætunum sem skiptust þannig: 8 gullverðalun, 6 silfur og 9 brons. Þessi árangur er frábær og er sá besti allra félaga í alpagreinum á leikunum, en næsta félag var með samtals 15 verðlaun sem skiptust þannig, 4 gull, 8 silfur og 3 brons.

Krakkarnir hafa sýnt góða ástundun í vetur, eru nú að uppskera samkvæmt því og eiga hrós skilið fyrir þennan góða árangur. Þjálfarar félagsins í þessum aldursflokkum í vetur voru þau Björgvin Hjörleifsson og Harpa Rut Heimisdóttir og eiga þau einnig hrós skilið fyrir gott starf í vetur.