Glæsilegur árangur á 70. ára afmæli Bridgefélags Siglufjarðar

Helgina 1. – 2. nóvember var haldið 70 ára afmælismót Brigdefélags Siglufjarðar en það er elsta bridgefélag landsins. Alls tóku 27 pör þátt í mótinu og þar af vor tvö pör frá Dalvík. Verðlaun voru veitt fyrir fimm efstu sætin og stóð okkar fólk sig glæsilega og lenti í 1. og 5 sæti. Við óskum spilurunum innilega til hamingju með árangurinn. Nánari úrslit mótsins má finna á heimasíðu Bridgefélags Íslands www.bridge.is