Dalbæ færð gjöf frá Lionsklúbbnum Sunnu

Dalbæ færð gjöf frá Lionsklúbbnum Sunnu

Á dögunum færði Lionsklúbburinn Sunna íbúum á Dalbæ grjónapokaspil að gjöf. 
Spilið verður notað til dægrastyttingar fyrir íbúa. Spilið er hanverk eftir Kristinn Hólm frá Akureyri. 
Kristín Heiða iðjuþjálfi á Dalbæ tók við gjöfinni fyrir hönd íbúa og segir að spilið eigi eftir að koma að góðum notum 
fyrir íbúa og fólk í dagdvöl á Dalbæ.