Gjaldskrár standi óbreyttar - seinni umræðu um fjárhagsáætlun frestað

Á síðasta fundi sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar, sem haldinn var 19. nóvember síðastliðinn, samþykkti sveitarstjórn að endurskoða áformaðar breytingar á þjónustugjaldskrám sem taka áttu gildi 1. janúar nk. Með þessari ákvörðun vill sveitarstjórn leggja sitt af mörkum til að sporna við verðbólgu og auka kaupmátt komandi kjarasamninga. Sveitarstjórn telur að allir verði að bera sameiginlega ábyrgð og vinna saman að því markmiði.

Í kjölfarið samþykkti sveitarstjórn því að fresta síðari umræðu um fjárhagsáætlun 2014 og felur byggðarráði og sveitarstjóra að leggja nýja tillögu fyrir sveitarstjórn á fundi hennar þann 3. desember nk.