GHD íslandsmeistarar í sveitakeppni stúlkna 15 ára og yngri

Íslandsmótum í sveitakeppni yngri flokkanna í golfi er nýlokið og þar náði stúlknasveit 15 ára og yngri hjá Golfklúbbnum Hamar glæsilegum árangri en þær unnu Íslandsmeistaratitilinn. Sveitina skipa Ásdís Dögg Guðmundsdóttir, Birta Dís Jónsdóttir, Elísa Rún Gunnlaugsdóttir, Magnea Guðmundsdóttir, Ólöf María Einarsdóttir og Þórdís Rögnvaldsdóttir.

Þetta er ein stærsta stundin í sögu klúbbsins og vitnisburður um mikið og gott starf þjálfaranna Árna Sævars Jónssonar og Heiðars Davíðs Bragasonar og unglinganefndar. 

Glæsilegt, til hamingju!