Gefur skólabörnum töskur og öll ritföng

Gefur skólabörnum töskur og öll ritföng

„Fyrirtæki eru svolítið föst í því að styrkja alltaf sömu hlutina, íþróttahreyfinguna og eitthvað slíkt - sem er bara mjög gott mál - en við ákváðum að kanna það núna hvort peningarnir nýttust hugsanlega betur annars staðar," segir Björn Snorrason, eigandi og forstjóri fyrirtækisins Dalpay á Dalvík, sem hefur gefið öllum börnum sem hefja nám í Dalvíkurskóla í haust allar þær skólavörur sem krafist er.

„Fyrirtækin hafa ekkert endilega endalaust magn af aurum til að henda í allar áttir - annars mundi maður ábyggilega gera það - þannig að við vildum bara koma þessu fyrir á sem bestum stað," bætir Björn við. Dalpay hafði því samband við skólann og kynnti stjórnendum hans hugmyndina og fékk upplýsingarnar um þær vörur sem krafist væri. Þær eru af ýmsum toga; skólatöskur, pennaveski, ýmiss konar möppur og stílabækur, blýantar, trélitir, yddarar, lím og skæri, svo fátt eitt sé nefnt.

Börnin eru tuttugu og úr því að Dalpay keypti aðföngin í slíku magni fékkst afsláttur. Heildarpakkinn kostaði tæpar 400 þúsund krónur. „Þannig að þetta kemur sér vel fyrir alla," segir Björn.

Björn segir að fleira en fjármálasjónarmið geri þetta snjalla gjöf. Til dæmis geti það komið í veg fyrir stríðni í skólanum ef allir verða jafn settir við upphaf skólagöngunnar og með sams konar búnað. Það sé enda ekki á færi allra foreldra að útbúa börn sín ríkulega.

Björn segir uppátækinu hafa verið vel tekið, þótt einhverjir foreldrar hefðu þegar verið búnir að kaupa sitthvað af vörunum fyrir börnin áður en fréttist af því. Þau geti þó mögulega skilað þeim.

Björn vonar að önnur fyrirtæki fari að fordæmi hans. „Það þætti mér alveg kjörið því þetta er ágæt búbót fyrir fólk. Þetta eru í raun ekki stórir peningar. Hugsaðu þér öll fyrirtækin - nú veit ég svo sem ekki með höfuðborgarsvæðið - en á flestum þessum litlu svæðum úti á landi eru öflug fyrirtæki sem mundi sjálfsagt ekki muna um þetta," segir hann.

Fyrirtækið Dalpay sér um svokallaða færslumiðlun, eða greiðslukerfi fyrir kreditkort á vefsíðum. Fyrirtækið var stofnað árið 2004 og skipti í fyrstu aðallega við erlend fyrirtæki. Upp á síðkastið hefur innanlandsmarkaður verið að glæðast, að sögn Björns.
stigur@frettabladid.is