„Gefstu aldrei upp“ - Söfnun fyrir Kristján Guðmundsson

Um miðjan maí sl. lenti Kristján Guðmundsson, ungur Dalvíkingur, í mjög alvarlegu slysi er hann var við vinnu við löndun úr togara í Dalvíkurhöfn. Kristján er enn á spítala og sér ekki fyrir endann á þeirri dvöl. Eftir það tekur við löng og ströng endurhæfing. Foreldrar Kristjáns hafa ekki vikið frá honum eina einustu stund. Engum dylst að jafnt kostnaður sem tekjumissir eru íþyngjandi til lengri tíma, ofan á allt annað. Því hafa vinir og félagar Kristjáns, m.a. úr Leikfélagi Dalvíkur, ákveðið að halda skemmtun honum til styrktar.

Eftirfarandi reikningur hefur verið stofnaður í Sparisjóði Svarfdæla:
rkn. 1177–05–400300
kt: 150290–4069
Ábyrgðarmaður reikningsins er Kolbrún Gunnarsdóttir starfsmaður í Sparisjóðnum.

Kristján hefur þrátt fyrir ungan aldur komið að mörgum verkefnum í heimabyggðinni og víðar. Hann hefur spilað í hljómsveitinni Ofnæmir, unnið með börnum og unglingum við Dalvíkurskóla og félagsmiðstöðina. Hann og félagar hans hafa komið að mörgum viðburðum, jafnt stórum sem smáum m.a. með ljós og hljóð. Kristján hefur starfað með Leikfélagi Akureyrar og Leikfélagi Dalvíkur jafnt á bakvið tjöldin sem á sviði og sl. vetur lék hann stórt hlutverk í leikritinu Heima hjá ömmu hjá LD og sló eftirminnilega í gegn. Í nóvember árið 2007 varð stórbruni að Stærra Árskógi í Dalvíkurbyggð þar sem ábúendur misstu mikið og í kjölfarið fór Kristján og félagi hans af stað með söfnun sem endaði með frábærri fjáröflunarskemmtun fyrir fullu húsi. Kristján er jákvæður, hress og hvetjandi einstaklingur sem er alltaf tilbúin til að aðstoða og hjálpa öðrum, nú leggjum VIÐ honum lið og hjálpum honum og hans fjölskyldu.

Skemmtunin verður haldin í Íþróttamiðstöðinni miðvikudaginn 3. ágúst kl. 20:00 og þar mun fjöldi skemmtikrafta koma fram.

Dagskrá kvöldsins verður stjórnað af félögum úr Leikfélagi Dalvíkur sem munu sjá um að kynna atriðin. Annars er dagskráin á þessa leið:

kl. 20:00 - Setning

Bræðurnir Heimir og Siggi Ingimarssynir
Kristjana Arngrímsdóttir
Bræðurnir Þórir og Júlli Baldurssynir - Hammond + Skeiðar.
Sigurvin "Fíllinn" Jónsson
Eyþór Ingi og Matti Matt
Hvanndalsbræður
Karlakór Dalvíkur
Hundur í óskilum
Uppboð: Júlíus Júlíusson.
Ofnæmir og Stefán Þór.


Lokið 22.30.