Gatnagerðargjöld felld niður tímabundið

Bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar ákvað á fundi sínum 19. okt. 2010 að fella tímbundið niður gatnagerðargjöld af byggingum einstaklinga og fyrirtækja á lóðum við þegar tilbúnar götur.

Þessi samþykkt gildir frá samþykkt þess í bæjarstjórn og út árið 2012 og miðast við að framkvæmdir hefjist innan þessara tímamarka.

Þess er vænst að þessi samþykkt virki hvetjandi á þá sem hafa verið að hyggja að byggingum.