Gásir - Menningarminjadagur Evrópu 5. september

Menningarminjadagur Evrópu hér á landi verður haldinn sunnudaginn 5. september n.k. Þema dagsins að þessu sinni er sjávar- og strandminjar. Í tilefni dagsins mun Sigurður Bergsteinsson minjavörður Norðurlands eystra leiða gesti um hinn forna verslunarstað Gásir við Eyjafjörð kl. 14:00. 

Tilgangur menningarminjadagsins er að vekja athygli almennings á gildi menningararfsins og skapa vettvang til þess að almenningur geti kynnst sögulegu umhverfi sínu. Dagskrá menningarminjadagsins má finna í heild á heimasíðu Fornleifaverndar ríkisins, www.fornleifavernd.is