Fyrsti leikurinn í nýja húsinu okkar

Fyrsti leikurinn í nýja húsinu okkar

Í gær fórum við í fyrsta sinn með börn í nýja húsið í leik. Það var yngri hópurinn sem fékk heiðurinn af þessum leik. Þar sem húsið er enn frekar tómlegt bergmálar mikið þar inni og verður unnið að því að minnka það. Hins vegar þótti börnunum það ekki leiðinlegt og fengu smá útrás fyrstu mínúturnar til þess að hlaupa um og hafa hátt  Við ræddum svo við þau um að reyna að hafa rólega stund sem gekk vel. Í myndasafninu okkar hér á síðunni má sjá fleiri myndir frá þessu.