Fyrsta uppkast af útliti Íþróttamiðstöðvar

Fyrsta uppkast af útliti Íþróttamiðstöðvar

Byggingarnefnd íþróttahúss fundaði í gær og á hann mættu Fanney Hauksdóttir, arkitekt og Anton Örn Brynjarsson verkfræðingur. Þau voru með tillögur að útliti nýrrar íþróttamiðstöðvar sem á að rísa við Sundlaug Dalvíkur. Nefndin er ánægð með framlagðar tillögur og lagt var til að athugað  yrði með tengingu á milli jarðhæðar og nýbyggingar. Hér fyrir neðan gefur að líta fyrstu drög að byggingunni og með því að smella á hana fæst stærri mynd.