Fyrsta miðvikudagsganga sumarsins

Eins og síðasta sumar stendur Ferðafélag Svarfdæla fyrir léttum gönguferðum á miðvikudögum nú í sumar og hefjast allar göngur klukkan 17:15.

3. júní verður gengið eftir sjávarbakkanum frá ósum Brimnesár að ósum Karlsár. Sveinbjörn Steingrímsson mun leiða þessa göngu og miðla göngufólki af þekkingu sinni. Mæting við ósa Brímnesár og eru allir velkomnir.